Please install Flash and turn on Javascript.

Landssöfnun á vegum Hjálparstarfs aðventista - ADRA Prenta Rafpóstur

Næstu daga, 9.-15. ágúst, munu fulltrúar Hjálparstarfs aðventista/ADRA heimsækja bæjarbúa á Norð-Vesturlandi, Norð-Austurlandi, Austurlandi og Suð-Austurlandi í árlegri söfnun til að taka við framlögum til hjálpar mæðrum og börnum í Eþíópíu en þar í landi deyja um 25.000 konur og 300.000 ungabörn ár hvert í tengslum við barnsfæðingar.

Mæður og börn í brennidepli

Bætt heilsa mæðra er liður númer 5 á þúsaldaráætlun SÞ til að útrýma fátækt í heiminum. Megin verkefni HA/ADRA í ár er að mennta og þjálfa aðstoðarfólk í Eþíópíu við barnsfæðingar, að bæta tækjabúnað og aðstöðu heilsugæslustöðva, fræða almenning um meðgöngu, fjölskylduskiplagningu og getnaðarvarnir, standa að nauðsynlegum bólusetningum og útvega læknishjálp og hjálp handa vannærðum.

Í Eþíópíu er meðalaldur fólks 55 ár ekki síst vegna hárrar tíðni ungbarnadauða (98/1000). Auk þess deyr fjöldi barna vegna vannæringar og næringarskorts. Af Eþíópísku þjóðinni lifir 44% undri fátækramörkum, u.þ.b. 85% íbúanna búa í sveit þar sem getur verið afar erfitt að afla nægilegs matar, vatns og lyfja og 42% þjóðarinnar skortir aðgang að hreinu vatni og aðeins 11% hafa aðgang að hreinlætiskerfi. 

Heimildarmyndin Börn til sölu

Fjölmörg önnur verkefni eru starfrækt af hálfu ADRA víða um heim. M.a. vinnur ADRA gegn því að börn séu seld í Kambódíu og Tælandi. Íslenska heimildarmyndin Börn til sölu eftir Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur og Guðmund Bergkvist sem fjallar m.a. um starf ADRA gegn mansali í Kambódíu hefur verið sýnd í Sjónvarpinu í tvígang. 

Enginn sem fylgist með fréttum líðandi stundar kemst hjá því að finna til með þeim þúsundum og milljónum í heiminum í dag sem þjást og líða á einn eða annan hátt. Hjálparstarf aðventista á Íslandi samstarfar með ADRA (alþjóða þróunar-  og líknarstofnun aðventista) sem veitir neyðar- og þróunaraðstoð án tillits til pólitískra skoðana, trúarbragða eða kynþáttar hvarvetna þar sem neyð steðjar að.

Hjálparstarf innanlands

Tíu prósent af söfnunarfénu renna til neyðaraðstoðar og þess utan renna 20% söfnunarfjárins til hjálparstarfs hér á landi sem er unnið af Alfa, líknarfélögum Aðventsafnaðanna, en Alfa hefur í um 85 ára skeið veitt einstaklingum og fjölskyldum aðstoð sem á hjálp þurfa að halda. Sérstakt átak var gert á undagengnu ári með fjárhagsaðstoð ADRA erlendis frá til að aðstoða fjölskyldur hér á landi sem eiga í erfiðleikum vegna bankahrunsins.

Hjartans þakkir fyrir að taka vel á móti söfnunarfólki Hjálparstarfsins á komandi dögum og einnig innilegustu þakkir til þeirra mörgu sem hafa lagt starfinu lið á undangengnum árum.

Eric Guðmundsson

Hjálparstarf aðventista/ADRA á Íslandi

 
Innsöfnun 2010 hafin Prenta Rafpóstur
Í dag hófst hin árlega innsöfnuðarferð um allt land. Vaskur hópur ungmenna í fylgd með nokkrum bílstjórum lagði af stað upp úr hádeginu. 

Þrír hópar fara fyrst austur með Suðurlandinu. 

Einn hópur leggur af stað norður og byrjar söfnunina á Hvammstanga. Þau ætla svo að hittast á Akureyri á föstudeginum.

Við óskum þeim góðs gengis og Guðs blessunar.

Upplýsingar um verkefni ársins 2010 verða hér á vefnum seinna í kvöld.

 
Styrktartónleikar 7. maí 2009 Prenta Rafpóstur
Meðal annars koma fram:

Garðar Thór Cortes
Ellen Kristjánsdóttir
Kristján Kristjánsson (KK)
Davíð Ólafsson & Stefán Stefánsson

Allir sem fram koma gefa vinnu sína og fer öll innkoma óskipt til ADRA. Áherslu verkefni ADRA í ár eru að bjarga barn ungum stúlkum út kynlífsánauð í Tælandi og Kambótíu.

Velgerðarfulltrúi ADRA á Íslandi er Garðar Thór Cortes.

Keyptu miða núna á
Miði.is